Það er eitthvað svo yndislegt við það að rölta á milli bókahilla og láta sig dreyma um að lesa og skoða allar þessar bækur. Ég fór með elsta barnið í smá dekurferð á bókasafnið í dag og lét hugann reika og drauminn rætast! Afraksturinn var ekki af verri gerðinni, ég kom heim með stafla af lesa áfram
Heimadekur
26. apríl 2012 – 17:31
Eins dásamlegt það er að fara í smá dekur á snyrtistofu þá hef ég hvorki tíma né fjárráð til þess að fara þangað reglulega. Ég hef ekki sagt skilið við vinkonur mínar snyrtifræðingana en á undanförnum árum hef ég þurft að hagræða aðeins og þar með draga úr snyrtistofuferðum. Ég hef orðið þeim mun duglegri lesa áfram
Einfaldur fiskréttur
25. apríl 2012 – 08:30
Stundum opna ég ísskápinn og það er bara ekkert til. Samt er einhvern veginn ekki pláss fyrir svo mikið sem eitt skinkubréf til viðbótar. Í gær tók ég áskoruninni og það var ekki máltíð af verri endanum sem rataði á diskana. Ég byrjaði á því að týna grænmetiskostinn til, hann var nú óvenju fátæklegur en lesa áfram
Sláðu í gegn í saumaklúbbnum!
24. apríl 2012 – 14:15
Hérna er smáréttur sem er tilvalinn til að taka með í saumaklúbbinn. Þetta er líka ágætis snarlréttur ef einhver afgangur er, þá er hægt að smyrja þessu á ristað brauð og jafnvel skella smá sultu með. Eins og allt sem mér finnst gott þá er þetta einfalt og þægilegt í framkvæmd. Efnistök og innihald 1 lesa áfram
Muffinsbakstur og skreytingar fyrir önnum kafnar húsmæður
23. apríl 2012 – 22:01
Ég hef lengi haft áhuga á kökuskreytingum og eftir að börnin fóru að gera vart við sig í þessum heimi þá hef ég alltaf haft mikinn metnað fyrir afmælum og allskonar kökuskreytingartilefnum. Það vill þó yfirleitt þannig til að ég er á síðustu stundu með allt saman og get engan veginn gefið mér þann tíma lesa áfram
Ekki vera lummó
22. apríl 2012 – 15:32
Grjónagrautur er örugglega uppáhaldsmaturinn hjá börnunum á þessu heimili. Stundum á föstudögum höfum við grjónagraut í matinn fyrir þau og þegar þau eru farin í háttinn eldum við hjónin eitthvað flott handa okkur og opnum jafnvel eina flösku með. Á laugardagsmorgninum er svo tilvalið að nota afganginn af grautnum og steikja ekta gamaldags lummur ofan lesa áfram
Forréttur sem þú gleymir aldrei!
21. apríl 2012 – 10:52
Ektamaðurinn minn bauð mér einu sinni út að borða á margra stjörnu veitingastað erlendis. Við leyfum okkur ekki oft slíkan munað en þegar við það gerum þá erum við ,,all in“. Þriggja rétta kvöldverður, vín og dásamlegur félagsskapur, þessu kvöldi á ég aldrei eftir að gleyma. Við rifjum oft upp matinn sem við fengum okkur, lesa áfram
Latur kvöldmatur
20. apríl 2012 – 12:43
Stundum nenni ég engu, sértaklega ekki að elda kvöldmat. Þó ég elski að eyða löngum stundum í eldhúsinu þá koma þær stundir sem mig langar mest af öllu að henda mér í sófann, hafa súkkulaði í kvöldmat og horfa á stelpumyndir. Þar sem ég á lítil börn sem heimta athygli, kvöldmat og góðar stundir er lesa áfram
Gleðilegt sumar
19. apríl 2012 – 13:35
Gyðjurnar óska öllum nær og fjær gleðilegs sumars með von og ósk um sólríka daga framundan. Við vonum að þið hafið notið dagsins með ykkar nánustu. Það er einnig okkar ósk að þið fylgið sumrinu úr hlaði með gleði, tilhlökkun og bjartsýni því íslensk sumur og náttúra eru svo sannarlega einstök og þeirra ber að lesa áfram
Gæðastund gyðjunnar í morgunsárið
18. apríl 2012 – 07:26
Þegar morgunskíman þig vekur, hví ekki að tipla á tánum fram & sjá hvað á móti þér tekur. Það gerði ég í morgun. Ég vaknaði fyrir allar aldir. Húsið var hljótt, maðurinn og barnið steinsofandi og ég glaðvöknuð. Vorið liggur í loftinu og sumarið handan við hornið. Allt í einu eru skilin á milli dags lesa áfram