Vantar þig hugmynd að fljótlegum, einföldum og hrikalega góðum kvöldmat? Ég gerði kjúklingaborgara um daginn, ég hafði temmilegar væntingar til bragðs þar sem ég var að gera þetta í fyrsta skipti og skellti bara einhverju útí sem ég átti til. Stunur míns ektamanns við matarborðið á meðan hann át borgarann í sæluvímu sögðu mér að read more
Category Archives: Matur
Naut og bernaise!
Nautasteik með ,,bernes“ Það er ekkert betra en heilgrilluð nautalund með bernes og bakaðri kartöflu. Ekkert. Þetta er hátíðarmaturinn á mínu heimili, eldað við sérstök tilefni eins og afmæli, áramót og þessháttar. Áður en við masteruðum nautið fengum við okkur oft nautasteik þegar við fórum út að borða en það eru liðnir tímar, nú er read more
Spínat- og fetafyllt kjúklingabringa
Hvað er dásamlegra en fetaostur? Fetaostur blandaður við spínat og troðið innan í kjúklingabringu kannski? Þetta er of gott til að prófa ekki! Kjúklingabringur, ein á mann. Skerið vasa í bringurnar en passið að skera ekki í gegn. Hvítlaukur, magn eftir geðþótta. Spínat, einn poki. Fetaostur. Salt og pipar. Beikonsneiðar. Steikið smátt saxaðan hvítlaukinn í read more
Allskonar ofan á brauð…eða kex?
Það er alveg nauðsynlegt að bjóða uppá eitthvað gott þegar gesti bera að garði, er það ekki? Hvað þá að mæta með eitthvað dýrindis gúmmelaði í saumaklúbbinn eða í vinnuna og gleðja vinnufélagana? Hér eru nokkrar hugmyndir af góðum salötum, sem virka alveg jafnvel hvort sem þau fara ofan á ristaða brauðsneið, snittubrauð, gott kex read more
Einfaldur en samt svo góður – nachosréttur!
Þessi réttur er mjög vinsæll á mínu heimili og slær alltaf í gegn, er svo skemmtilegur og góður! Það sem þú þarft í hann er: Doritos eða aðrar nachos flögur Kjúklingur – kryddaður með mexíkósku kryddi (tilvalið að nota afganga) Tómatar Avacado Rauðlaukur Hvítlaukur, paprika, kóríander og/eða ólívur ef vill, eða bara hvað sem þér read more
Tómatar og basilíka
Það var á fallegum degi, í sólríku landi við Miðjarðarhafið, sem ég átti samtal við mann frá Kósóvó. Myndarlegur maður, með svart hár og augu dekkri en dekksti miðnæturhiminn. Samtalið barst um heima og geima og ég spurði hann af einskærri forvitni hvað væri helsta náttúruauðlindin eða iðnaðurinn á þessu svæði. Eldurinn logaði í augunum read more
Kræklingapestó
Það þarf ekki að vera flókið til að vera gott! Þess þá heldur að það þurfi að vera dýrt. Við ektamaðurinn höfum gaman af því að elda góðan mat, drekka gott vín og eiga saman gott spjall. Reglulega fáum við okkur góða og safaríka steik með almennilegri sósu og öllu tilheyrandi en oft höldum við read more
Einfaldur fiskréttur
Stundum opna ég ísskápinn og það er bara ekkert til. Samt er einhvern veginn ekki pláss fyrir svo mikið sem eitt skinkubréf til viðbótar. Í gær tók ég áskoruninni og það var ekki máltíð af verri endanum sem rataði á diskana. Ég byrjaði á því að týna grænmetiskostinn til, hann var nú óvenju fátæklegur en read more
Sláðu í gegn í saumaklúbbnum!
Hérna er smáréttur sem er tilvalinn til að taka með í saumaklúbbinn. Þetta er líka ágætis snarlréttur ef einhver afgangur er, þá er hægt að smyrja þessu á ristað brauð og jafnvel skella smá sultu með. Eins og allt sem mér finnst gott þá er þetta einfalt og þægilegt í framkvæmd. Efnistök og innihald 1 read more
Indverskt þema
Ég á mjög erfitt með að fylgja uppskriftum. Það er mér eiginlega ómögulegt. Í langan tíma langaði mig til þess að elda indverskan rétt, en ég treysti mér ekki í það af því að ég hafði enga tilfinningu fyrir því hvað ég væri að gera. Þekkti ekki kryddin eða hlutföllin og vissi ekkert hverju ég gæti read more