Fyrir stuttu átti ég létt spjall við vinkonu, í trúnaði deildi hún dálitlu ótrúlegu með mér. Ég viðurkenni að ég varð hálf slegin eftir samtalið. Gat verið að hún hefði í alvöru aldrei bakað marengs?
Marengs er nú ekki flókinn hugsaði ég. Bara passa að þeyta eggjahvíturnar vel, bæta sykri, baka lengi en ekki gleyma tímanum. Svo má ekki setja fyllinguna of seint á milli botnanna! Gleymdi ég nokkuð lyftiduftinu?
Er þetta kannski ekki svona einfalt? Er ég orðin vön og löngu búin að gleyma byrjendamistökunum?
Komdu tengdapabba á óvart næst þegar hann boðar komu sína, karlmenn elska þessa köku mest! Hér ætla ég að deila með ykkur uppskrift að ljúffengri marengstertu sem klárast alltaf.
Botn:
4 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
1/2 tsk lyftiduft
2 bollar Rice Krispies
Aðferð:
Hitið ofninn í 160°C. Næsta verk er að aðskilja eggjahvíturnar frá rauðunum. Stífþeytið eggjahvíturnar í dálitla stund eða þar til eggjahvíturnar hafa tekið hvítan lit, ekki hætta að þeyta heldur bætið sykri og púðursykri smátt og smátt saman við. Þegar blandan hefur þykknað og tekið glans má hætta að þeyta. Blandan á að vera orðin stíf í skálinni, þannig að hægt sé að hvolfa skálinni án þess að blandan hreyfist.
Blandið nú lyftidufti og Rice Krispies varlega saman við. Takið tvær arkir af bökunarpappír, leggið hringform ofan á og teiknið hring eftir því og úr verður nokkurs konar ímyndað form. Skiptið blöndunni jafnt og smyrjið á báðar arkir. Skellið botnunum í ofninn og bakið í 55 mínútur. Slökkvið þá á ofninum og leyfið botnunum að vera áfram í ofninum í a.m.k. klukkustund, jafnvel yfir nótt.
Krem og fylling:
Hitið 2 marsstykki og 1/2 plötu af suðusúkkulaði í potti ásamt ca. 1 dl af rjóma (ef blandan verður of þunn má kæla, ef hún er of þykk má bæta meiri rjóma). Þeytið 4 dl af rjóma – fylgist vel með svo hann verði ekki að smjöri og smyrjið á neðri botninn. Takið ca. 1/3 af súkkulaðiblöndunni og dreifið yfir rjómann. Leggið hinn botninn ofan á.
Skerið niður jarðarber og setjið ofan á kökuna ásamt bláberjum og dreifið afgangnum af súkkulaðiblöndunni yfir ávextina. Geymið kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt til að mýkja marengsinn. Verði ykkur að góðu.
